|
Um Dreifmenntun V-Barð.Dreifmenntun V-Barð er þróunarverkefni á sviði grunnskólakennslu í Vestur Barðastrandarsýslu og byggir á nýtingu upplýsingatækni við kennslu. Verkefnið er stutt af Menntamála- og iðnaðarráðuneyti. Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið frá því snemma árs 2002. Tveir grunnskólar, grunnskóli Tálknafjarðar og grunnskóli Vesturbyggðar sem hefur þrjár kennsludeildir þ.e. á Patreksfirði, Bíldudal og á Birkimel ,eru þátttakendur í verkefninu.
Aðdragandi verkefnisins: Vestur Barðastrandarsýsla hefur ekki farið varhluta af hrinu fólksflutninga til suð-vestur horns landsins. Þetta hefur m.a. haft þær afleiðingar í för með sér að erfitt hefur verið að uppfylla kröfur sem gerðar eru til skólahalds í nútíma samfélagi. Fjarlægðir milli skóla innan svæðis eru á bilinu 19-40 km. og er yfir erfiða fjallvegi og þverhnípta sjávarmúla og skriður að fara, þar sem harður vetur getur hamlað för um svæðið. Það var því ekki að ástæðulausu að heimamenn fóru að beina sjónum sínum til hinnar öru þróunar í upplýsingatækni með lausn í huga. | |
 | | 





2010 | S | M | Þ | M | F | F | L | |   |   |   | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |   |   |
|
|
| |