Forsíða Forsagan Stefna Staðan i dag Myndasíðan English Netslóðir Áfangaskýrsla

Markmið

Megin markmið með Dreifmenntun V-Barð er að nýta upplýsingatækni í þágu fræðslustarfs í grunnskólum á svæðinu
og leitast þannig við að efla það og bæta og styrkja þannig stöðu byggðanna.
Helstu áhersluatriðin eru eftirfarandi í þessu sambandi:

  • Að leggja grunn að skólasamfélagi sem svari við breyttum aðstæðum.
  • Að breyta ríkjandi hugmyndum um tilhögun náms og fræðslu.
  • Að þróa samkennslu og efla samstarf milli skóla á svæðinu.
  • Að auka og bæta gæði og fjölbreyttni námsins.
  • Að innleiða nýja kennsluhætti með hæfum kennurum.

Leiðir að markmiðum.

Til að ná fram markmiðunum er nauðsynlegt að skilgreina og skipuleggja og  setja fram áætlanir um verkefnið,  til að tryggja framgöngu þess.  Þetta útheimtir  m.a. eftirfarandi:

  • Að greina þátttakendur í verkefninu.
  • Skilgreina hlutverk þeirra.
  • Framsetning verk-,tíma-og fjárhagsáætlana.
  • Einstaklingsbundið mat á tölvufærni kennara.
  • Setja fram endurmenntunar og fræðsluáætlun kennara.
  • Að aðlaga áætlunina skólastarfi og setja í framkvæmd.
  • Þarfagreining vegna kaupa á tækjum og búnaði.
  • Kaup á tækjum og búnaði.
  • Samhæfing tækja og annars búnaðar m.a. með þátttöku kennara og nemanda.
  • Að gera kennsluáætlanir og samhæfa stundarskrár skólanna.
  • Tilraunakennsla hefst í skólum í Vestur Barð.
  • Endurskoðun verk-, tíma- og fjárhagsáætlana.

Framtíðarsýn

Aðilar verkefnisins hafa þá framtíðarsýn að ávinningur af því verði m.a. þessi:

  • Betra skólasamfélag byggt á gagnvirkri samkennslu milli skóla.
  • Hæfari kennarar sem beita nýjust tækni og kennsluaðferðum.
  • Ánægðir nemendur.
  • Auknar framfarir nemenda í námi.
  • Aukin tækifæri til náms.
  • Jákvæð jaðaráhrif.
  • Gagnvirkt samband foreldra við kennara og skólayfirvöld til að fylgjast með námsframvindu barna sinna.
  • Sterkari byggð í Vestur Barðastrandarsýslu.


 

Mynd nr. 1  Skipurit Dreifmenntunar V-Barð frá upphafi.

 

1. apríl 2005  Verkefnisstjóri.


Mynd nr. 2  Afstöðumynd FS-netsins.

 

 




Netfang
Lykilorð




2010
<<  September  >>
S
M
Þ
M
F
F
L
   1234
5
67891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

dm@dreifmenntun.is
Aðalstræti 126, 450 Patreksfirði.
SNERPA
internet