Forsíða Forsagan Stefna Staðan i dag Myndasíðan English Netslóðir Áfangaskýrsla

Áætlun um fjarkennslu 2004-2005

Ákveðið hefur verið að kenna 2-3 námsgreinar í samkennslu í gegnum myndfundabúnaðinn þetta skólaár.  Áætlunin gengur út á að kenna í 9. og 10. bekk og verða námsgreinar valdar með tilliti til þess að reyndur grunnskólakennari er í einum eða tveimur skólum og er reynslan hans nýtt fyrir alla.

Hugmyndin er að kennslustundir með búnaði verði 1-2 sinnum í mánuði og síðan vinni nemendur gagnvirk verkefni í Netskóla.  Hver og einn getur þar unnið með sínum hraða en ákveðinn skilafrestur er gefinn.  Sama námsefnið er kennt í öllum skólunum í þeim námsgreinum sem kenna á saman.  Efninu verður skipt í námshluta eða námskeið og geta kennarar skipt með sér verkum innan námsgreinarinnar og geta námskeiðin staðið yfir í mislangan tíma.  Reynt verður að nýta viðkomandi kennsluáætlanir frá námskeiðinu:" um samkennslu í fjarkennslu".  Námsmat verður með prófum í Netskóla, þegar nemandi er kominn að kaflaskilum og með mati á vekefnum óg þátttöku í fjarfundum.  Nemendur geta fylgst með stöðu sinni á sinni síðu í Netskóla og séð þar hvenær þeir hafa lokið námslotu.

En eins og í öllum þróunarverkefnum þá eru kennarar og skólastjórnendur að fikra sig áfram með kennsluhætti sína með það að markmiði að auka á gæði námsins og gera það meira aðlaðandi og skemmtilegt.


 

Upplýsingar frá rekstri.

 

 

10.febrúar 2005


 

Af undirbúningi og stöðu mála.

 

Í byrjun var verkefnið brotið upp í nokkra verkþætti og þeir síðan greindir í flokka eftir eðli þeirra, þ.e.a.s.: 

  • Tækniumhverfi
  • Kennsluumhverfi
  • Endurmenntun
  • Stjórnun.

Þegar allir þættir í verkefninu höfðu verið kostnaðargreindir og flokkaðir þá lá fyrir hin raunverulega kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.

Mynd. nr. 3

Kostnaðaráætlun Dreifmenntunar V-Barð. 2003-2006

 

Með dyggum stuðningi Menntamála- og iðnaðarráðuneytis þá varð verkefnið að veruleika, en hluti kostnaðar kemur á sveitarfélögin Tálknafjarðarhrepp og Vesturbyggð og er skipting kostnaðar þessi:

 

Mynd nr. 4

Skipting kostnaðar v/Dreifmenntunar V-Barð.

 

Tækniumhverfi, er sá hluti  sem hvað auðveldast er að leysa í verkefni sem þessu því tækninni fleigir ört fram og auðvelt að fá úrlausnir við tæknilegum málum, en um leið er þessi liður lang fjárfrekastur.  Ljóst var strax að leggja þyrfti út í verulegar fjárfestingar í tölvum, skjávörpum og margvíslegum öðrum búnaði t.d. netbúnaði til þess að skapa nauðsynlegt umhverfi til að samkenna milli skóla.  Nýtt er FS-háhraðanet framhaldsskólanna sem gefur hverjum þessara fjögurra skóla um 2MB/s í tengihraða.  Hver skóli er skilgreindur sem útstöð frá Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði.  Framkvæmd var þarfagreining vegna tækja og búnaðar sem til þurfti og var utanaðkomandi óháður aðili fenginn til þess.  Það var talið heppilegra heldur en að láta söluaðila tækjanna sjá um þessa hlið.  1. október 2004 hefur verið fjárfest í margvíslegum tækjabúnaði fyrir um 16 milljónir króna.

 

Kennsluumhverfi, er sá þáttur sem snýr að margvíslegum hugbúnaði og kerfum sem notaður er við skólastjórnunina, t.d. Stundvísi, en eins við rauntímakennslu og samskipti milli skóla og má þar nefna Netskólann og eins SmartMeeting, sem er nýr afar áhugaverður hugbúnaður sem er nú til skoðunar og reynslu hjá kennurum og stjórnendum skólanna.

 

Endurmenntun, snýr að kennurunum en þeir eru lykilaðilar í þessu verkefni. Að undangengnu einstaklingsbundnu mati á tölvufærni kennara til að meta færni þeirra til að taka þátt í dreifkennslunni, kom í ljós að færni þeirra var í góðu meðallagi og oft betri í samanburði við aðra sem gengist hafa undir greiningu sem þessa.  Það sem kennarar töldu sig helst þurfa á að halda varðandi þjálfun var:

  • notkun vefs í kennslu
  • námskeið um internet.
  • námskeið í myndvinnslu.

Áætlunin um endurmenntun tók mið af þessu.

Sett voru upp eftirtalin námskeið:

 

Netskólinn í námi og kennslu.

50 tíma námskeið þar sem helstu markmið voru að þátttakendur öðlist þjálfun í notkun Netskólans m.a. við að: setja upp námskeið, setja inn skólanámskrá svo eitthvað sé nefnt.  Námskeið þetta var haldið á tímabilinu desember 2002-apríl 2003.

 

Notkun rafrænna miðla við kennslu.

20 tíma námskeið sem m.a. var hugsuð til að þátttakendur geti annast staðbundna kennslu á endurmenntunarnámskeiðum ýmissa sérgreina heima í héraði.  Námskeiðið var haldið í ágúst 2003.

 

Námskeið í notkun Stundvísi.

Námskeiðið var haldið haustið 2003 og fjallaði um notkun skólastjórnunarhugbúnaðarins Stundvísi sem skólarnir tóku í notkun á árinu.

 

Ýmiss námskeið í notkun UST

Kennarar öðlast verklega færni í að nota hin ýmsu tæki og forrit í UST, netið, ritvinnsla, myndvinnsla osfrv.

2003-2004

 

Kennsla í fámennum skólum.

40 stunda staðbundin lota og í fjarnámi.  Á þessu námskeiði var hugað að sérkennum fámennra skóla, kostum og göllum í skipulagi þeirra, samkennslu og einstaklingskennslu, valnámskeiðum og skólanámskrárgerð.  Sérstaklega var kannað hvernig ný upplýsingatækni getur bætt nám og kennslu í fámennum skólum.

 

Önnur námskeið.

  • Sjálfsmat skóla.
  • Stjórnun og samskipti.
  • Átak gegn einelti.

Teymishópur.  Settur var saman hópur kennara úr öllum skólum sem hefur það hlutverk m.a. að vera leiðandi í notkun UST í kennslu, verði stuðningshópur sem aðrir kennarar geta leitað til, stuðli að jafningjafræðslu og verði þátttakandi í þróun námsumsjónakerfis Netskólans.

 

Mat námskeiða

Kennarar og teymis-hópur hafa tvisvar skilað mati á endurmenntunartímabilinu 2003-2004.  Teymis-hópurinn skilaði greinargerð um reynslu af fyrstu tveimur árum verkefnisins frá sjónarhóli kennara.

 

Stjórnunarþátturinn, er sá hluti sem snýr að beinni stjórnun verkefnisins og er þar um að ræða annarsvegar fjögurra manna verkefnisstjórn og hinsvegar verkefnisstjóra sem ráðinn er í hluta starf að sinna daglegum rekstri og stjórnun verkefnisins.  Verkefnisstjórnin leggur á ráðin varðandi áætlanir og þróun verkefnisins.  Það sem af er þá er stjórnunarkostnaður óverulegur og langt innan marka þeirra fjárhagsáætlana sem gerðar hafa verið.  Fjármál og bókhald er unnið á skrifstofu Vesturbyggðar.  Undir þennan lið fellur kennslufræðileg ráðgjöf sem veitt er af Kennaraháskóla Íslands, sem er aðili í verkefninu.

 

Mynd nr. 5

Útgjöld verkefnisins frá upphafi m.v. 1.10.2004

 

Kynningar á verkefninu "Dreifmenntun Vestur-Barð.

Verkefnið hefur verið kynnt meðal fagaðila innanlands og utan t.d. í Píran í Slóveniu á ráðstefnu um upplýsingatækni í maí 2004, en einnig á málþingi Rannsóknarstofnunar KHÍ í okt. 2003. Áformað er að halda formlega kynningu á næstu mánuðum.

 

 




Netfang
Lykilorð




2010
<<  September  >>
S
M
Þ
M
F
F
L
   1234
5
67891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

dm@dreifmenntun.is
Aðalstræti 126, 450 Patreksfirði.
SNERPA
internet