Forsíða Forsagan Stefna Staðan i dag Myndasíðan English Netslóðir Áfangaskýrsla
Til baka
Menntamálaráðherra heimsækir V-Barð

Menntamálaráðherra ásamt föruneyti heimsótti skólana í Veseturbyggð og á Tálknafirði í gær og kynnti sér meðal annars framgang dreifmenntaverkefnisins.

Ráðherra heimsótti skólann á Bíldudal og fylgdist þar með kennslustund með dreifmenntasniði í eðlisfræði. Ráðherra kom við í skólanum og íþróttahúsinu á Tálkanfirði, snæddi hádegisverð, aðstoðaði við að draga Grænfánann að húni og skoðaði skólann. Á Patreksfirði var sömuleiðis kíkt á íþróttahúsið og skólann og þar var kynning á dreifmenntaverkefninu. Sú kynning var í höndum verkefnastjórnar, skólastjórnenda og kennara. AÐ því búnu var móttaka á Þorpinu þar sem formlegri heimsókn lauk. Ekki var annað að heyra á ráðuneytisfólki en að framgangur verkefnisins vekti hrifningu og almenna ánægju. Ráðherra sagði í ræðu við móttökuna á Þorpinu að greinilega væri verið að vinna gott starf á þessu sviði í skólunum, verkefnið væri mjög áhugavert, það hefði skilað árangri nú þegar og möguleiki væri á að ráðuneytið gæti stutt verkefnið enn frekar á næstu misserum. IK



Netfang
Lykilorð




2010
<<  September  >>
S
M
Þ
M
F
F
L
   1234
5
67891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

dm@dreifmenntun.is
Aðalstræti 126, 450 Patreksfirði.
SNERPA
internet