Forsíða Forsagan Stefna Staðan i dag Myndasíðan English Netslóðir Áfangaskýrsla
Til baka
Lokaskýrsla vegna verkefnisins komin út

Út er komin hjá Menntamálaráðuneytinu lokaskýrsla vegna Dreifmenntaverkefnis grunnskólanna í Vesturbyggð og á Tálknafirði. Skýrslan er unnin af Háskólanum á Akureyri. Skýrsluna má nálgast á vefslóðinni; http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dreifm_bard.pdf

Í frétt um verkefnið og skýrsluna á mbl.is og á bb.is segir: Umtalsverður ávinningur af dreifmenntun í grunnskólum V-Barðastrandasýslu Í skýrslu sem unnin var fyrir menntamálaráðuneytið af Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri um dreifmenntun í grunnskólum Vestur-Barðastrandasýslu kemur fram að í meginatriðum verði ekki annað séð en umtalsverður ávinningur hafi orðið af dreifmenntunarverkefninu. Kemur fram í skýrslunni að félagsleg tengsl nemenda á svæðinu sem verkefnið náði til hafa aukist, nemendur upplifa sig þátttakendur í stærri heild og dregið hefur úr hrepparíg þeirra á meðal. Dreifmenntunarverkefnið virðist stuðla að auknu sjálfstæði nemenda í námi. Kennsluaðferðir í skólunum hafa orðið fjölbreyttari og samskipti kennara á svæðinu aukist. Kennarar hafa almennt öðlast aukna færni í notkun tölvu og forrita sem nýst hefur þeim með einum eða öðrum hætti í kennslu. Fátt virðist benda til annars en að árangur nemenda í fjarkennslu sé sambærilegur við árangur nemenda í hefðbundinni kennslu en ekki er komin næg reynsla til að fullyrða slíkt. Nemendum virðist líða vel í kennslustundum og er tölvan þeim greinilega mjög handgengin. Nemendur eru betur undirbúnir fyrir framhaldsnám í fjarnámi en nemendur sem hafa eingöngu fengið hefðbundna kennslu. Netskólinn og MSN hafa opnað samskiptaleiðir milli nemenda og kennara og virðast koma að einhverju leyti í stað hinnar líkamlegu nálægðar. Með dreifmenntunarverkefninu hefur skapast tækifæri fyrir skólana alla að fá kennara með sérþekkingu í tiltekinni námsgrein til að annast kennslu á svæðinu án þess það kosti sérstaka kennslutíma í hverjum skóla með tilheyrandi ferðakostnaði og erfiðleikum yfir vetrartíma. Aftur á móti virðast skólarnir ekki hafa nýtt sér þetta til fulls. Frá þessu var greint á mbl.is.



Netfang
Lykilorð




2010
<<  September  >>
S
M
Þ
M
F
F
L
   1234
5
67891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

dm@dreifmenntun.is
Aðalstræti 126, 450 Patreksfirði.
SNERPA
internet